Styrkja félagið

HÆGT ER AÐ STYRKJA GLEYM MÉR EI MEÐ FRJÁLSUM FRAMLÖGUM, KAUPUM Á MINNINGARKORTUM OG MEÐ ÞVÍ AÐ HLAUPA TIL STYRKTAR FÉLAGINU Í REYKJAVÍKURMARAÞONI.

Kt. 501013-1290 

Reikningsnúmer: 0357-22-000411

Styrkja mánaðarlega

Minningarkort

Þú getur sýnt foreldrum og aðstandendum stuðning í verki með því að senda fallegt minningarkort í nafni barnsins þeirra til styrktar Gleym mér ei.

Til að panta minningarkort, sendið póst á gme@gme.is.

Í tölvupóstinum þarf að koma fram hvaða texti á að vera ritaður í kortið, hvert skal senda kortið og frá hverjum kortið er. Við munum sjá um að prenta og senda kortið fyrir ykkur. Við biðjum um að lagt sé inn á reikning Gleym mér ei lágmarksupphæð 4.000 kr.

Image
Image

Stuðningur þinn mun hjálpa okkur að...

útvega allt efni í Minningarkassana, sem gefnir eru foreldrum sem missa barn á meðgöngu og í/eftir fæðingu.
Um 150 slíkir kassar eru gefnir á ári.
Gleym mér ei stendur alfarið að gerð kassana og dreifingu á alla spítala landsins.
Placeholder Image
Placeholder Image
Placeholder Image

Stuðningur þinn mun hjálpa okkur að...

kaupa og gera klæði fyrir andvana fædd börn, og öskjur fyrir þau allra minnstu, en mikilvægt er að spítalarnir geti útvegað falleg klæði í litlum stærðum þegar andlát barns ber að garði.

Stuðningur þinn mun hjálpa okkur að...

gera fræðsluefni fyrir fólk sem hefur nýlega misst. Gleym mér ei gerir bæði bæklinga sem dreift er á spítala og heilsugæslur, myndbönd með reynslusögum og fleira sem hjálpar fólki að takast á við sorgina.
Placeholder Image
Placeholder Image

Stuðningur þinn mun hjálpa okkur að...

veita einstaklingum og foreldrum sem hafa upplifað missi á meðgöngu og í/eftir fæðingu stuðning í sorgarúrvinnslu. Gleym mér ei býður syrgjendum upp á ráðgjafasamtal, jafningjastuðning og stuðningshópa. Gleym mér ei heldur einnig Minningarstund fyrir foreldra og aðstandendur ár hvert, 15. október.

Stuðningur þinn mun hjálpa okkur að...

bæta stuðning og umgjörð í kringum fólk sem missir á meðgöngu, en Gleym mér ei stendur vörð um hagsmuni þessa viðkvæma hóps og hefur átt samstarf við spítalana, heilsugæsluna og fleiri fagaðila um árabil.
Placeholder Image

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er mikilvægur þáttur í fjáröflun Gleym mér ei. Árið 2023 söfnuðust yfir 9 milljónir króna sem munu fara í mikilvæg verkefni félagins. 

Við erum hlaupurnum okkar og öllum þeim sem styrktu okkur afar þakklát! 

Missir á meðgöngu er oft einangrandi fyrir foreldra og þeirra nánustu – þessi sorg er mjög erfið þar sem stórfjölskylda og vinir hafa jafnvel ekki náð að tengjast barninu á sama hátt og þeir sem stóðu foreldrunum næst. En það er gott að finna fyrir stuðningi samfélagsins síns. Því er Reykjavíkurmaraþonið kjörið tækifæri til að sýna stuðning og heita á hlauparana okkar, kaupa boli, hvetja og taka þátt í umræðunni. 

Gleym mér ei gefur hlaupurunum sínum bol sem hannaður var af 𝐁𝐞𝐫𝐠𝐫𝐮́𝐧𝐮 𝐈́𝐫𝐢𝐬𝐢 𝐒æ𝐯𝐚𝐫𝐬𝐝𝐨́𝐭𝐭𝐮𝐫 árið 2021.

Einnig geta þau sem ekki hlaupa keypt bolinn með eða án sérmerkingar. Bolurinn er unisex snið og úr léttu gerviefni, tilvalið til að hlaupa í. Allar barna og fullorðinsstærðir eru í boði.

𝐌𝐲𝐧𝐝𝐢𝐫: 𝐒𝐢𝐥𝐣𝐚 𝐑𝐮𝐭 𝐓𝐡𝐨𝐫𝐥𝐚𝐜𝐢𝐮𝐬

Image
Image
Image